Sunday, July 31, 2011

Borgarnes.

Núna er Verslunarmannahelgi og ég sit og slappa af í Borgarnesi hjá ömmu og afa. Mér líður alltaf svo ótrúlega vel þegar ég er hérna, fátt sem breytist og allt jafn notalegt og gott. Sama stemningin, góður matur, sama lyktin af rúmfötunum og það besta - auðvitað amma og afi. Ég á margar góðar minningar héðan. Bjössaróló var nátturulega aðal staðurinn, þar gat maður verið tímunum saman í allskonar leikjum, tína ber, róla, vega salt, renna sér í rennibrautinn. Hvet þá sem ekki hafa séð Bjössaróló að tékka á honum næst þegar leiðin liggur í Borgarnes eða í gegn um Borgarnes - þessi bær er svo miklu meira en bara Hyrnan. Síðan var maður alltaf í sundlauginni, gamla innilaugin sem ég var frekar nervus við því hún var svo djúp, rennibrautirnar þrjár (ég var alltaf skíthrædd við grænu sem var stærst) og sullupollurinn.

Svo fórum við Hildur systir oft í göngutúra með ömmu út um allan bæ, og þá sérstaklega í Skalló (Skallagrímsgarðurinn) þar sem við fórum í Rauðhettu leik - þar sem amma var úlfurinn. Síðan labbaði maður upp hinn svokallaða Himnastiga á leiðinni heim til ömmu og afa. Stundum ef við vorum heppnar fórum við að versla með ömmu í gamla kaupfélaginu og þá kíktum við í dótabúðina sem var á neðstu hæð og fengum að kaupa okkur einhverja barbí aukahluti eða þá slím sem var vægast sagt mjög vinsælt eða þá litabækur og liti.


Við eyddum stundum í garðinum með bolta eða sullulaug, síðan var þar blá tré róla og önnur rauð(stundum græn) róla, báðar smíðaði afi. Það var líka mikið sport að fá að fara með afa inn í bílskúr og skoða allt dótið, þar voru stundum ormar í kassa til þess að veiða með og síðan gaf afi okkur alltaf rautt extra tyggjó.


Inni gátum við farið í milljón leiki, uppáhalds var þó slæðuleikur - það er að segja að leika okkur með allar fínu slæðurnar hennar ömmu, klæða okkur í þær og nýta þær í allskonar hluti. Síðan notuðum við líka gömul ilmvatnsglös sem amma átti, lékum okkur með gamlar dúkkur sem mamma og systir hennar áttu, mis krípí dúkkur þó. Síðan vann ég bílabraut á 3 hæðum með þvottastöð í happadrætti og hún var einstaklega vinsæl. Svo var það að puttaprjóna föt á gamlar barbídúkkur, búa til hús úr legókubbum, horfa á gamlar Spaugstofu spólur eða leika með töluboxið hennar ömmu.

Í nokkrum herberjum hérna, það er að segja einu svefnherberginu, ganginum og klósettinu eru hlerar. Þar er hægt að fara inn og skríða á milli herbergja. Það er samt mjög mikið dót þar og ryk og ég satt best að segja var of mikill tjikken til að fara nokkurtíman inn þarna en sumir gerðu það og mér þóttu þau miklar hetjur að þora.

Fastur liður var svo alltaf kaffitíminn, þar sem amma er snillingur í bæði að baka og elda. Appelsínukakan hennar og röndótt jólakaka hafa alltaf verið í uppáhaldi hjá mér.

Þegar við urðum eldri og urðum gelgjur settum við á okkur augnskugga og kíktum við með Mæju frænku á diskótek í Óðali (það er að segja félagsmiðstöðin hérna) og flissuðum að strákunum.

Ég gæti skrifað endalaust um Borgarnes, og ég er örugglega að gleyma einhverju en mér líður alltaf frábærlega þegar ég er hérna.

Tuesday, July 26, 2011

Spice Girls.

Þær voru einu sinni algjörlega málið. Tónlistin spiluð ENDALAUST, ég og Hildur lékum þær allar í einu, ekkert mál, svo var það náttúrulega Spice Girls the movie (alltof kjánaleg ef maður horfir á hana í dag en hún var æði í þá daga) og síðast en ekki síst límmiðar og myndir sem maður skipti á við aðra. Ég átti risa bunka af þessu, en ein myndin var alveg uppáhalds og það var þessi: 


Það var sko ekki séns að ég myndi skipta þessari og ég man meirasegja daginn sem ég opnaði pakkann og fékk þessa mynd.

Klæðnaðurinn hjá dömunum var ekki af verri endanum.



Síðan vildu alltaf allir vera Emma og næst best var að vera Victoria. Ég vildi aldrei vera Geri, ekki veit ég afhverju, kannski fannst mér hún ekki nógu smart.

Og eitt lag í lokin.




Monday, July 25, 2011

Mmm.

Ég var að taka til í gömlu dóti áðan, þegar ég rakst á nokkra gamla tússliti. Þetta voru svona stórir, feitir tússlitir með lykt sem ég eeelskaði þegar ég var lítil. Það hafa örugglega flestir átt svona tússliti, bleiku og appelsínugulu voru alltaf með rosa góðri lykt en svo var svarti sem var með lakkríslykt ógeðslegur og ég litaði helst bara ekkert með honum.




Ég var líka á Ósi (sumarbústaður ömmu og afa) um daginn og þá fann ég svona pakka í einni skúffunni og litabók, og ég stóðst ekki mátið og tók mig til og litaði með þeim. Maður var sífellt þefandi af þessu í æsku, kannski er ég þessvegna eins og ég er í dag.

Wednesday, July 13, 2011

Unglingar.

Þegar ég var stubbur stafaði mín mesta hræðsla af unglingum.
Einn góðan veðurdag þegar ég, Sólveig frænka og Hildur systir vorum að leika okkur úti á róló, komu stórir strákar og hentu grjóti í okkur. Þá upplifði ég mig eins og í hrollvekjumynd þar sem þeir hlupu á eftir okkur og við (eða örugglega bara ég) grenjandi.
Annað atvik var þegar við krakkarnir vorum út í garði að búa til snjókarl og snjóhús og hópur af "stórum" strákum réðust inn í garðinn. Þeir voru mun fleiri en við og eltu okkur út um allan garðinn og hentu í okkur snjóboltum. Ég varð létt skemmd eftir þetta, svo gífurlega hrædd var ég. Eftir þetta tók ég stóran sveig í hvert sinn sem ég sá unglinga og hljóp í burtu ef þeir höfðu eitthvað við mig að segja. Það þarf ekki mikið til að maður verði lafandi hræddur. Þetta er allt öðruvísi í dag, nú eru leikskóla krakkar bara farni að gefa manni puttann, ekki séns að ég hefði þorað í það í den.