Monday, June 27, 2011

Disney.

Disney myndir voru partur af minni barnæsku og held ég flest allra á mínum aldri.

Sú fyrsta sem ég sá held ég að hafi pottþétt verið Mjallhvít og dvergarnir sjö, en hana áttum við á dönsku. Mér finnst hún enn þann dag í dag lang skemmtilegust þannig.

  
Uppáhalds atriðið mitt.            


Fantasia var önnur mynd sem ég horfði alltaf á heima hjá vinum mínum Lenu og Árna, ég var örlítið smeyk við hana en þó fannst mér hún mjög heillandi og skemmtileg.


Ég og litla sys horfðum oft á Sing a long songs með Disney sem mamma keypti í útlöndum og sungum hástöfum með.

Sing- along- songs

Síðan var það Hefðrafrúin og umrenningurinn fyrir hundasjúku mig.


Meira fyrir hundasjúklinginn, það var 101 Dalmatíuhundar sem var ofarlega á listanum, ég var rosalega hrædd við Grimmhildi Grámann samt.

Mary Poppins, yndisleg. Þetta var uppáhalds atriðið mitt í myndinni og ég var alltaf að reyna að smella fingrum til þess að taka til í herberginu mínu.

Spoonful of sugar

Alladín, held að hún sé einna efst á listanum yfir uppáhalds Disney myndir. Ég vildi alltaf vera eins og Jasmín og ég, systir mín og Soffía frænka lékum okkur ALLTAF í Jasmín leik þegar við hittumst þar sem við fengum allar að vera Jasmín.




 Ásam Alladin, er Lion King með þeim efstu (á samt frekar erfitt að gera á milli þeirra). Tímon og Púmba fannst mér fyndnastir í heimi - sérstaklega þetta atriði.

Tímon og Púmba

Guffagrín - aaaalveg best. Gat horft á hana aftur og aftur.


Pochahontas. Ég held að það hafi verið fyrsta myndin sem ég sá í bíó og mamma fór að grenja yfir. Var líka mjög stolt að hún (mamma) söng í henni. Vildi líka vera Pocahontas og Flögri og Míkó voru svona Tímon og Púmba þessarar myndar.



Flubber er svona ein af þeim leiknu Disney myndum sem er í miklu uppáhaldi.




Mulan var einnig ein kvenhetjan sem ég og sys fíluðum, við horfum stundum á hana enn þann dag í dag. Alltaf er svona aulalegt en jafnframt drepfyndið tvíeyki, í þetta sinn drekinn Músjú og lukkukribban.



Nú er komið svo mikið í þetta blogg að ég tek fyrir hinn helminginn bara seinna. Um að gera að finna eina gamla Disney mynd, setja  SPÓLUNA í  og vera lítill.







Thursday, June 23, 2011

Leikhús.

Mér hefur alltaf fundist gaman að fara í leikhús, alveg frá því ég var pínulítill stubbur. En ég átti mér þó nokkur uppáhaldsleikrit, til dæmis var Skilaboðaskjóðan eftir samnefndri bók alveg númer eitt. Ég fékk síðan geisladiskinn í afmælisgjöf og spilaði lítið annað eftir það. Síðan þegar ég var að vinna á leikskóla núna á seinustu árum þá var ég alltaf að spyrja krakkana hvort þeir væru ekki til í að hlusta á Skilaboðaskjóðuna með mér!



Síðan þegar ég var orðin örlítið eldri en þó ekkert mikið, þá var Bugsy Malone aðalmálið. Það var sýnt í Loftkastalanum, við keyptum síðan diskinn og gerðum ekkert nema syngja með honum og kunnum öll lögin utan að og kunnum örugglega enn. Hérna er eitt lag:

Á morgun

Síðan var AUÐVITAÐ Kardemommubærinn vinsæll, Dýrin í Hálsaskógi, Grease og Ronja.




Wednesday, June 22, 2011

Svefntími.

Á yngri árunum vorum ég og Hildur systir alltaf í kojum, ég í efri koju og hún í neðri. Alltaf áður en við fórum að sofa lagðist ég hjá henni í neðri koju og pabbi sagði okkur sögu, söng með okkur eða mamma las fyrir okkur og kenndi okkur bænir. Lögin sem við sungum voru alltaf þau sömu, en frekar random og steikt  þegar maður hugsar út í það eftirá. Eitt af lögunum var My bonnie (reyndar mun flottara hjá okkur en í þessari útgáfu) og síðan Kátir voru karlar (mest random í heimi myndi ég halda). Síðan sungu við Skýin (ógeðsleg júttjúb útgáfa en you get the picture) með mömmu. Pabbi var alveg langbestur í að semja sögur og við gleymdum okkur algjörlega í þeim.

Síðan lásum við auðvitað fullt af bókum, en nokkrar af mínum uppáhalds voru "Ég vil ekki fara að hátta", "Pönnukökukóngurinn", "Lata Gréta", allar Snúðs og Snældu bækurnar, "Snuðra og Tuðra", "Skuggarnir í fjallinu", "Ævar á grænni grein" og svona milljón bækur í viðbót enda eitt það skemmtilegasta sem ég gerði var að lesa.

Tuesday, June 21, 2011

Húsafell.


Þar sem það er svo gott veður í dag, fór ég að hugsa um alla tímana sem ég var í Húsafelli með familíunni. Þar vorum við í kósý bústað og ég, Hildur og amma sváfum alltaf á loftinu, mér fannst það ógeðslega kúl. Síðan var heitur pottur þarna sem við eyddum ófáum stundunum. Einn af þessum sólríku dögum vorum ég, Hildur, amma og Davíð frændi í pottinum og amma samdi texta og lag um okkur. Ég var kópurinn í þesssu lagi. Það var semsagt svona (bara textinn hér því ekki ætla ég að syngja og taka það upp)

Höfrungur litli fór út á haf, höfrungur litli fór í kaf
þá kom selurinn, með litla kópinn sinn, og synti allt í kringum höfrunginn.
Þá kom veiðimaðurinn, og vildi ná þeim upp í bátinn sinn.
Þau urðu voða hrædd, þessi litlu skinn, þau vildu ekki ver'í kvöldmatinn.


Monday, June 20, 2011

Komdað leika.

Þegar ég var lítil var mikið sem mér fannst skemmtilegt að leika mér að, mismunandi eftir því á hvaða aldursskeiði ég var líka. Það sem stendur upp úr var algjörlega:

Playmo - þar sem allar stelpurnar hétu Rósa.











Sylvaníu fjölskyldan

               
















Lego og Duplo  - ég og Hildur bjuggum til þvílíkar hallir.










Barbí - auðvitað, þær voru alltaf á leið á ball, í hárgreiðslu, á tískusýningu, að ferðast í húsbílnum you name it.



















Og þetta er einungis brota brot, kem með meira seinna.

Ronja.

http://www.youtube.com/watch?v=C13oL-z4jno

Þessa mynd horfði ég á oft og mörgum sinnum þegar ég var lilli. Mest hugsaði ég um hvað rassálfarnir væru pirrandi, hvað helvítis gjáin væri hræðileg, hvort brauðið sem þau borðuðu væri gott og síðan varð ég vandræðaleg þegar kallarnir voru allsberir út í snjónum. Síðan hlustuðum við stundum á lögin úr þessu frænkurnar og þegar diskurinn byrjaði á einhverju hræðilegu helvítisnorna dæmi þá földum við okkur undir teppi.

Thursday, June 9, 2011

Wednesday, June 8, 2011

Dagbækur.

Þegar ég var lítil var ég mikið fyrir það að koma hugsunum mínum á blað, það er að segja skrifa í dagbækur. Það er frekar fyndið að skoða þær núna, kannski bara fyrir mig en ég ákvað að deila hérna einstaklega nákvæmum færslum úr gömlum dagbókum. (Það er tekið fram í byrjun bókarinnar  að það sé STRANGLEGA BANNAÐ AÐ LESA ÞESSA BÓK)

1. maí 1998 (þarna var ég sem sagt nýorðin 9 ára)
Í dag var frí í skólanum af því það er 1. maí. Í morgun vaknaði ég klukkan 7:42 og ég fór fram og þá vaknaði mamma og gaf mér að borða. Ég fór svo að horfa á sjónvarpið. Ég horfði fyrst á Bíbí og félagar, svo horfði ég á Smáborgaran og svo á Guffa og félaga og svo horfði ég á Skot og mark og svo á Mikka mús.

3. maí 1998
.... Svo kom Sólveig. Hún vildi nátturulega strax fara í tölvuna. Sólveig sagði að ég væri búin að vera í tölvunni í klukkutíma. Það var ekki satt. Ég var bara búin að vera í henni í 20 mínótur. Svo var Sólveig í henni í klukkutíma. (Allaf gott að geta röflað smá í dagbókina þar sem enginn sér ;))


Það fyndna við svona dagbækur er að þetta er allt upp á mínútu, allt kirfilega dokjúmentað hvað ég gerði, hvað ég borðaði, hverjir voru þar.

Síðan til að sýna hversu óeðlilega mikil gelgja ég var síðan árið 2002 og 2003 ætla ég að setja inn bút úr gamla blogginu mínu. Flottust.

Hæj... kom úr Borgarnesi í gær :D Það var ógeðslega gaman þar! Tanja og Sóla voru memmér og við vorum bara eikkað að labba um, fórum á hestbak, sólbað, skoða stráka og fleira ;) Síðan kom ég bara heim og svonna. Var í vinnunni áðan, og ojbara, við hilly þurftum að þrífa allt þaddna inni ullabjakk! Þurftum að þrífa kósettið og alla vaskana, og sóða og skrúbba allt og það var svoleiðist djösdrulla að ég var alveg að æla! En ég slapp við að þrífa klóstið hilly gerði það, híhí ;) Ég mótmælti harðlega... En í staðinn fékk ég essa yndislega skítugu vaska...umm..... er núna á msn... Að tala við sólu...það eru fáir inná. En 
jæja, sí jú leiter ;) :*
.... jæjah....reyndi síðan að fara´i bíó með t0nju á wrong turn á föstudaginn, tóks ekki því kellingin sá hva tanja var gömul á kortinu...jæja mátti reyna...hehe sorglegt..löbbuðum nirrí bæj frá kringlunni í staðinn :D



Tuesday, June 7, 2011

Ú Í.

Ú í ú a a .


Bjuggum til ófáa dansana við þetta lag systurnar og nágrannarnir. Getið rétt ímyndað ykkur...ih.

Rex.




Rex er og var algjörlega málið. Ég sat límd við sjónvarpið þegar Komissar Rex var í því, þvílíkur töffari, endalaust borðandi pulsusnúða. Hundasýki mín var á háu stigi líka þarna.

Slím.



Slím. Ógeðslega tilgangslaust en þó þvílíkt skemmtilegt. Aðal sportið var þegar við systurnar vorum í Borgarnesi hjá ömmu og afa var að fara í gamla kaupfélagið með ömmu, kaupa slím og leika með það þangað til það var orðið loðið.

Monday, June 6, 2011

Andabær.

Loooooove it.


(ýtið á linkinn)

Lúlla.



Mér finnst við hæfi að byrja bloggið á mynd af uppáhalds dúkkunni minni í öllum heiminum þegar ég var lítil. Hún hét og heitir Lúlla, ég fékk hana þegar ég var um 2 ára og var alltaf með hana með mér þangað til ég veit ekki hvenær. Upphaflega var hún í bleikum fötum en eins og sést eru þau orðin ansi skítug. Hún er líka með plástraför út um allt en mér fannst hún alltaf vera að meiða sig svo ég skellti á hana plástrum hér og þar. Síðan tannburstaði ég hana alltaf, þó hún sé eiginilega ekki með neinar tennur, bara tau andlit. Mörgum finnst hún krípí en mér finnst hún bara ansi sæt.

Fyrsta færslan.

Tinna heiti ég og er fædd árið 1989.
Ég man mikið úr barnæsku minni og finnst mjög gaman að því að rifja upp hluti úr henni, það er að segja fara í svokölluð nostalgíuköst.
Ég ákvað að stofna lítið blogg þar sem ég kem með myndir, video og annað sem tengist á einhvern hátt barnæsku minni og þeim árum sem ég var lítil - það er að segja ung, ég er ennþá lítil.
Vonandi hefur einhver jafn gaman að þessu og ég :)