Wednesday, June 22, 2011

Svefntími.

Á yngri árunum vorum ég og Hildur systir alltaf í kojum, ég í efri koju og hún í neðri. Alltaf áður en við fórum að sofa lagðist ég hjá henni í neðri koju og pabbi sagði okkur sögu, söng með okkur eða mamma las fyrir okkur og kenndi okkur bænir. Lögin sem við sungum voru alltaf þau sömu, en frekar random og steikt  þegar maður hugsar út í það eftirá. Eitt af lögunum var My bonnie (reyndar mun flottara hjá okkur en í þessari útgáfu) og síðan Kátir voru karlar (mest random í heimi myndi ég halda). Síðan sungu við Skýin (ógeðsleg júttjúb útgáfa en you get the picture) með mömmu. Pabbi var alveg langbestur í að semja sögur og við gleymdum okkur algjörlega í þeim.

Síðan lásum við auðvitað fullt af bókum, en nokkrar af mínum uppáhalds voru "Ég vil ekki fara að hátta", "Pönnukökukóngurinn", "Lata Gréta", allar Snúðs og Snældu bækurnar, "Snuðra og Tuðra", "Skuggarnir í fjallinu", "Ævar á grænni grein" og svona milljón bækur í viðbót enda eitt það skemmtilegasta sem ég gerði var að lesa.

No comments:

Post a Comment