Thursday, June 23, 2011

Leikhús.

Mér hefur alltaf fundist gaman að fara í leikhús, alveg frá því ég var pínulítill stubbur. En ég átti mér þó nokkur uppáhaldsleikrit, til dæmis var Skilaboðaskjóðan eftir samnefndri bók alveg númer eitt. Ég fékk síðan geisladiskinn í afmælisgjöf og spilaði lítið annað eftir það. Síðan þegar ég var að vinna á leikskóla núna á seinustu árum þá var ég alltaf að spyrja krakkana hvort þeir væru ekki til í að hlusta á Skilaboðaskjóðuna með mér!



Síðan þegar ég var orðin örlítið eldri en þó ekkert mikið, þá var Bugsy Malone aðalmálið. Það var sýnt í Loftkastalanum, við keyptum síðan diskinn og gerðum ekkert nema syngja með honum og kunnum öll lögin utan að og kunnum örugglega enn. Hérna er eitt lag:

Á morgun

Síðan var AUÐVITAÐ Kardemommubærinn vinsæll, Dýrin í Hálsaskógi, Grease og Ronja.




1 comment:

  1. leikhús eru best!! ég og hildur helga fórum í prufu fyrir Bugsy Malone, ég söng blátt lítið blóm eitt er og skil enn þann dag í dag ekki af hverju ég var ekki valin í neitt hlutverk! :)

    ReplyDelete