Þegar ég var lítil var ég mikið fyrir það að koma hugsunum mínum á blað, það er að segja skrifa í dagbækur. Það er frekar fyndið að skoða þær núna, kannski bara fyrir mig en ég ákvað að deila hérna einstaklega nákvæmum færslum úr gömlum dagbókum. (Það er tekið fram í byrjun bókarinnar að það sé STRANGLEGA BANNAÐ AÐ LESA ÞESSA BÓK)
1. maí 1998 (þarna var ég sem sagt nýorðin 9 ára)
Í dag var frí í skólanum af því það er 1. maí. Í morgun vaknaði ég klukkan 7:42 og ég fór fram og þá vaknaði mamma og gaf mér að borða. Ég fór svo að horfa á sjónvarpið. Ég horfði fyrst á Bíbí og félagar, svo horfði ég á Smáborgaran og svo á Guffa og félaga og svo horfði ég á Skot og mark og svo á Mikka mús.
3. maí 1998
.... Svo kom Sólveig. Hún vildi nátturulega strax fara í tölvuna. Sólveig sagði að ég væri búin að vera í tölvunni í klukkutíma. Það var ekki satt. Ég var bara búin að vera í henni í 20 mínótur. Svo var Sólveig í henni í klukkutíma. (Allaf gott að geta röflað smá í dagbókina þar sem enginn sér ;))
Það fyndna við svona dagbækur er að þetta er allt upp á mínútu, allt kirfilega dokjúmentað hvað ég gerði, hvað ég borðaði, hverjir voru þar.
Síðan til að sýna hversu óeðlilega mikil gelgja ég var síðan árið 2002 og 2003 ætla ég að setja inn bút úr gamla blogginu mínu. Flottust.
Hæj... kom úr Borgarnesi í gær :D Það var ógeðslega gaman þar! Tanja og Sóla voru memmér og við vorum bara eikkað að labba um, fórum á hestbak, sólbað, skoða stráka og fleira ;) Síðan kom ég bara heim og svonna. Var í vinnunni áðan, og ojbara, við hilly þurftum að þrífa allt þaddna inni ullabjakk! Þurftum að þrífa kósettið og alla vaskana, og sóða og skrúbba allt og það var svoleiðist djösdrulla að ég var alveg að æla! En ég slapp við að þrífa klóstið hilly gerði það, híhí ;) Ég mótmælti harðlega... En í staðinn fékk ég essa yndislega skítugu vaska...umm..... er núna á msn... Að tala við sólu...það eru fáir inná. En
jæja, sí jú leiter ;) :*
.... jæjah....reyndi síðan að fara´i bíó með t0nju á wrong turn á föstudaginn, tóks ekki því kellingin sá hva tanja var gömul á kortinu...jæja mátti reyna...hehe sorglegt..löbbuðum nirrí bæj frá kringlunni í staðinn :D
No comments:
Post a Comment