Tuesday, July 26, 2011

Spice Girls.

Þær voru einu sinni algjörlega málið. Tónlistin spiluð ENDALAUST, ég og Hildur lékum þær allar í einu, ekkert mál, svo var það náttúrulega Spice Girls the movie (alltof kjánaleg ef maður horfir á hana í dag en hún var æði í þá daga) og síðast en ekki síst límmiðar og myndir sem maður skipti á við aðra. Ég átti risa bunka af þessu, en ein myndin var alveg uppáhalds og það var þessi: 


Það var sko ekki séns að ég myndi skipta þessari og ég man meirasegja daginn sem ég opnaði pakkann og fékk þessa mynd.

Klæðnaðurinn hjá dömunum var ekki af verri endanum.



Síðan vildu alltaf allir vera Emma og næst best var að vera Victoria. Ég vildi aldrei vera Geri, ekki veit ég afhverju, kannski fannst mér hún ekki nógu smart.

Og eitt lag í lokin.




1 comment:

  1. Hahaha best, ég elskaði líka þessa mynd ef Emmu, enda var ég alltaf hún. Samt sagði ég alltaf að Mel C væri mín uppáhalds, en það var eiginlega alltaf Emma.

    -Hildur Ásgeirs

    ReplyDelete